Erlent

Deilt um útgáfu á bók Hitlers

Í fangelsinu hafði hinn verðandi nasistaforingi nægan tíma til að skrifa bókina alræmdu.
Í fangelsinu hafði hinn verðandi nasistaforingi nægan tíma til að skrifa bókina alræmdu. Nordicphotos/getty

Virtur sagnfræðingur í Þýskalandi vill að hin umdeilda bók Adolfs Hitlers, Mein Kampf, verði endurútgefin í Þýskalandi. Sökum höfundarréttarlaga hefur bókin, sem var ein sú umdeildasta á 20. öldinni, ekki verið gefin út frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar en árið 2015 verður öllum frjálst að gefa hana út þar sem þá verða liðin 70 ár frá láti höfundarins. Fréttavefur Der Spiegel greinir frá þessu.



Hörst Möller, yfirmaður stofnunar um samtímasögu í München, hefur áhyggjur af því að árið 2015 kunni nýnasistar að koma til með að misnota textann að því er hann sagði í samtali við þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung. „Á meðan Mein Kampf er ekki fáanleg í útskýrðum texta eru engin takmörk fyrir einfeldningslegum tilgátum um efni bókarinnar. Akademísk útgáfa gæti tekið burt hinn einkennilega goðsagnakennda blæ sem umlykur Mein Kampf.“



Eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar féll höfundarréttur Mein Kampf í skaut Bæjaralands, sem er eitt af sambandslöndum Þýskalands. Stjórnvöld þar hafa síðan ávallt neitað að gefa leyfi fyrir útgáfu bókarinnar undir því yfirlýsta markmiði að koma í veg fyrir útbreiðslu hugmyndafræði nasismans. Afstaðan er einnig byggð á „ábyrgð og virðingu fyrir fórnarlömbum Helfararinnar þar sem endurútgáfa myndi sýna þjáningu þeirra lítilsvirðingu,“ að því er fréttavefur Der Spiegel hafði eftir talskonu fjármálaráðuneytis Bæjaralands, sem fer með höfundarréttinn, á miðvikudag.



Hugmynd Möllers er misvel tekið meðal þýskra fræðimanna. Yfirmaður stofnunar um rannsóknir á andúð í garð gyðinga í Berlín, Wolfgang Benz, finnst hugmyndin fáránleg. „Hvernig geturðu sett skýringar við 800 blaðsíðna einræðu þar sem Hitler opinberar galna heimsmynd sína? Þú þyrftir að skrifa eftir hverja einustu línu: „Hitler hafði rangt fyrir sér hér“ og síðan „Hitler er alveg úti á túni hérna“ og svo framvegis.“



Benz telur jafnframt að lítið myndi ávinnast þó að bókin yrði gefin út nú með skýringum þar sem nýnasistar og hægriöfgamenn muni hvort sem er gefa hana út um leið og höfundarrétturinn dettur úr gildi.

„Og það er enginn að fara að kaupa akademíska útgáfu fyrir hundruð evra þegar þeir geta keypt ódýra kilju frá hægrisinnuðum útgefanda fyrir tvær evrur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×