Erlent

Kona Kirchners ætlar fram

Cristinu hefur verið líkt við Hillary Clinton og Evu „Evítu“ Perón, eiginkonu Juan Domingo Perón sem var forseti í Argentínu á árunum 1946-1955 og 1973-1974.
Cristinu hefur verið líkt við Hillary Clinton og Evu „Evítu“ Perón, eiginkonu Juan Domingo Perón sem var forseti í Argentínu á árunum 1946-1955 og 1973-1974. ap/fréttablaðið

Cristina Fernandez, eiginkona Nestors Kirchners Argentínuforseta, ætlar að bjóða sig fram í forsetakosningunum í landinu sem fara fram í lok október. Fernandez tilkynnti um framboð sitt á kosningafundi í borginni La Plata á fimmtudag.



Nestor Kirchner sagði fyrr í mánuðinum að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri svo að kona sín gæti boðið sig fram í staðinn. Kirchner hefur verið forseti í landinu frá árinu 2003.



Á kosningafundinum sagðist Fernandez ætla að halda áfram með vinstrisinnaðar umbætur eiginmanns síns sem hefur reist efnahag Argentínu við eftir að hann hrundi árið 2002. Á síðustu mánuðum hefur stuðningur við Kirchner minnkað í landinu, meðal annars vegna þess að verðbólga hefur farið hækkandi í landinu.



Í Argentínu má sami maðurinn aðeins gegna forsetaembættinu tvö kjörtímabil í röð. Pólitískir andstæðingar forsetans og Fernandez telja hugsanlegt að hjónin ætli að reyna að gegna forsetaembættinu á víxl næstu árin. Þeir segja að framboð Fernandez sé ein af leiðum þeirra hjóna til að misnota forsetaembættið og að þau beri enga virðingu fyrir lýðræðislegum stofnunum í landinu.



Skoðanakannanir benda til að Fernandez muni sigra í kosningunum í október en helsti keppinautur hennar er talinn verða fyrrverandi fjármálaráðherra landsins, Roberto Lavagna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×