Erlent

Talinn líkastur Hemingway

Larry Austin, fremstur til hægri, var valinn líkastur Ernest Hemingway. FréttAblaðið/AP
Larry Austin, fremstur til hægri, var valinn líkastur Ernest Hemingway. FréttAblaðið/AP

Hvítskeggjaður tryggingasölumaður frá Flórída vann keppni um hver sé líkastur nóbelsskáldinu látna, Ernest Hemingway, á árlegri hátíð í minningu rithöfundarins.



Larry Austin bar sigurorð af 122 öðrum keppendum í keppninni, sem fram fór á Sloppy Joe‘s Bar, eftirlætisknæpu Hemingways, þegar hann bjó í Flórída á fjórða áratug síðustu aldar. Lokaumferðin var haldin á laugardag en þá voru 108 ár frá fæðingu skáldsins.



Hemingway er meðal annars þekktur fyrir skáldsögur sínar „Hverjum klukkum glymur“, „Gamli maðurinn og hafið“ og „Vopnin kvödd“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×