Erlent

Um hundrað hafa slasast

Þátttakendur í nautahlaupinu áttu fótum fjör að launa í hlaupi gærdagsins.
Þátttakendur í nautahlaupinu áttu fótum fjör að launa í hlaupi gærdagsins. MYND/AFP

Einn var stangaður í rassinn og 96 hlutu minniháttar meiðsl í nautahlaupinu í Pamplona á Spáni í gær. Að sögn spænskra yfirvalda hafa engir þátttakendur hlotið alvarleg meiðsl.

Hlaupin fara fram daglega á meðan hátíðin San Fermín stendur yfir og eru árlegur viðburður. Hlaupið hefst að venju snemma að morgni þar sem þátttakendur hlaupa um steini lagðar götur borgarinnar á flótta undan æstum bolum. Hvert hlaup varir að jafnaði um tvær mínútur og eru þátttakendur um tvö þúsund talsins í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×