Erlent

Baðherbergi þekur 3.000 m²

Yfirvöld í Chongqing í suðvesturhluta Kína hafa opnað stærsta baðherbergi heims, sem þekur yfir þrjú þúsund fermetra á fjórum hæðum og inniheldur meira en þúsund klósett.

Baðherbergið er með egypsku ívafi og hljómar róandi tónlist á meðan gestir ganga örna sinna. Hyggjast yfirvöld í borginni láta heimsmetabók Guinness vita af mannvirkinu og fá það staðfest sem stærsta baðherbergi heims.

Aðgangur að baðherberginu er ókeypis og getur fólk valið milli þess að sitja undir berum himni, horfa á sjónvarp á meðan það teflir við páfann eða kasta vatni í þvagskálar í krókódílslíki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×