Vilja ekki sígaunana 7. júlí 2007 03:30 Þúsund Róma-sígaunar koma til Ítalíu í hverjum mánuði til að setjast þar að. Myndin er tekin við borgina Lyon í Frakklandi. MYND/AP
Þúsund Róma-sígaunar koma til Ítalíu í hverjum mánuði, margir þeirra frá Rúmeníu sem gekk í Evrópusambandið um síðustu áramót. Um sjö þúsund Róma-sígaunar hafa sest að í höfuðborginni Róm; einungis 1.500 þeirra búa í bæjaríbúðum en flestir þeirra eru heimilislausir og hafast við í hreysum sem þeir hafa reist sér. Enska blaðið The Guardian greindi frá þessu í vikunni. Innflutningur sígaunanna er orðinn svo mikið vandamál að mati stjórnvalda í Róm að borgarstjórinn Walter Veltroni hefur gripið til róttækra en jafnframt umdeildra aðgerða til að stemma stigu við innflutningi þeirra. Borgarstjórinn fór til þriggja bæja í Rúmeníu, þaðan sem meirihluti sígaunanna kemur; Craoiva, Valarasi og Turnu Severin, í lok júní til að ræða við stjórnvöld þar um hvernig hægt væri að fá sígaunana til að flytja ekki úr landi. Auk þess skrifaði borgarstjórinn undir samkomulag við stjórnvöld í Rúmeníu um samstarf við að senda sígaunana aftur heim í sérstökum tilfellum. Borgarstjórinn hefur líka sagt að stjórnvöld í Róm hyggist byggja fjórar búðir í úthverfum borgarinnar til að hýsa innflytjendurna. Á þriðjudaginn var stuðst við samkomulag Veltronis og stjórnvalda í Rúmeníu þegar fyrsti Rúmeninn var sendur aftur til síns heima, að sögn ítalska dagblaðsins Corriera della Sera. Um var að ræða fatlaðan mann að nafni Florín B. sem hafði búið á götum Rómaborgar og betlað sér til viðurværis. „Endurkoma Flóríns B. til Rúmeníu sýnir að samkomulagið sem við skrifuðum undir við yfirvöld í Búkarest mun skila árangri. Við getum nú boðið fólki sem á í miklum erfiðleikum eftir að hafa flutt til Rómar möguleikann á að aðstoða það við að fara aftur til síns heima, sérstaklega í tilfellum þar sem um er að ræða fatlaða eða bæklaða einstaklinga sem reyna að hafa í sig og á með betli og eiga í erfiðleikum með að draga fram lífið,“ sagði Walter Veltronis í samtali við Corriera della Sera á miðvikudaginn. Borgarstjórinn telur að aðgerðir hans muni skila árangri en talsmaður Róma-sígaunanna segir það ólíklegt að margir þeirra muni vilja fara aftur til Rúmeníu þar sem launin sem þeir geti fengið þar séu á milli 1.600 og 3.300 krónur á viku.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira