Erlent

Stúlkur fá mun minni menntun

Stúlkur eru langt á eftir drengjum í heiminum hvað varðar grunnmenntun, samkvæmt skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum.

Asískir sérfræðingar í menntamálum komu saman í Bangkok í vikunni og ræddu málefni stúlkna í grunnskólum. 115 milljón börn í heiminum gengu ekki í skóla árið 2006, þar af meirihlutinn stúlkur, eða 62 milljónir.

Af 781 milljón jarðarbúa sem eru ólæsir eru tveir þriðju konur. Viðurværi fólks byggist að miklu leyti á menntun sem það fékk í barnæsku, samkvæmt SÞ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×