Erlent

Flóðbylgja eyðir þorpi á Salómonseyjum

Flóðbylgja eyddi heilu þorpi á vesturhluta Salómonseyja á Suður Kyrrahafi í nótt eftir kröftugan jarðskjálfta. Flóðbylgjan reið yfir án viðvörunar, að því er Alex Lokopio, landsstjóri á Vesturhluta eyjanna, sagði í samtali við nýsjálenska ríkisútvarpið. Að minnsta kosti þrír eru látnir. Lokopio fylgdist með öldunni ganga á land og yfir þorpið. Hún er sögð hafa verið rúmlega 3 metra há. Björgunarsveitir hafa ekkki enn komist til aðstoðar og fréttir um fjölda látinna eru enn á reiki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×