Deilt um brjóstagjöf á Filippseyjum 20. júní 2007 02:00 Nokkrar konur beruðu máluð brjóst sín þegar þær mótmæltu þurrmjólkurframleiðendum fyrir utan hæstarétt Filippseyja. MYND/AFP
Deila um hvort mæður eigi að gefa börnum brjóst var tekin fyrir í hæstarétti Filippseyja í gær. Heilbrigðisyfirvöld héldu því fram að ágeng auglýsingaherferð hefði haft þau áhrif að margar konur trúi því að þurrmjólk sé betri en brjóstamjólk. Minna er nú um að konur hafi börnin sín á brjósti í Asíu og gefa einungis 35 prósent mæðra börnum sínum ekkert nema brjóstamjólk fyrstu sex mánuðina. Heilbrigðisstofnun Filippseyja ákvað því í fyrra að herða reglur um auglýsingar fyrirtækja sem framleiða þurrmjólk. Markmiðið var að gera þeim erfiðara fyrir að ná til foreldra barna undir tveggja ára aldri með auglýsingum sínum. Samkvæmt núgildandi lögum er ólöglegt að auglýsa vörur fyrir börn sem eru yngri en eins árs. Filippeysk heilbrigðisamtök höfðuðu mál gegn Heilbrigðisstofnun Filippseyja á þeim grundvelli að aðeins þing landsins hafi vald til að breyta reglum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með því að mæður hafi börn á brjósti fyrstu sex mánuðina og haldi brjóstagjöf áfram meðfram fæðugjöf fram til tveggja ára aldurs.
Mest lesið Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Trump: Khamenei látinn Erlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Innlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Fleiri fréttir Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Sjá meira