Erlent

62 ára afmæli í stofufangelsi

Ásamt vinum og fjölskyldu árið 2002. Síðar á árinu var hún hneppt í stofufangelsi.
Ásamt vinum og fjölskyldu árið 2002. Síðar á árinu var hún hneppt í stofufangelsi. MYND/AP

Einn frægasti pólitíski fangi í heiminum, San Suu Kyi, hélt upp á 62 ára afmælið sitt í gær í stofufangelsi fimmta árið í röð.

Yfirvöld í Búrma (Myanmar) hertu öryggisgæslu við heimili Suu Kyi til muna á mánudagskvöld. Engar fréttir bárust um mótmæli.

Suu Kyi, leiðtogi lýðræðissinnaðra aðgerðarssinna á Búrma, hefur varið yfir ellefu af undanförnum sautján árum í haldi yfirvaldra, mestmegnis í stofufangelsi. Stjórnvöld framlengdu varðhald hennar í síðasta mánuði um eitt ár.

Suu Kyi er meinað um nánast öll tengsl við umheiminn fyrir utan læknisheimsóknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×