Erlent

Áhersla lögð á hnattvæðingu

Halldór ásgrímsson. Norræna ráðherranefndin skipar lykilstöðu í hnattvæðingu Norðurlandanna.
Halldór ásgrímsson. Norræna ráðherranefndin skipar lykilstöðu í hnattvæðingu Norðurlandanna. MYND/Vilhelm

Nýr áfangi í norrænu samstarfi er hafinn. Ætlunin er að vinna sameiginlega að ýmsum málum til að kynna Norðurlöndin víða um heim. Þetta var ákveðið á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna með Halldóri Ásgrímssyni, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.

Ráðherrarnir vilja samræma norræna raforkumarkaðinn og styrkja fjárfestingar í fjarskiptanetum og framleiðslu.

„Á sumum sviðum skiptir það meginmáli að vinna saman að sameiginlegum markmiðum sem miða að norrænu notagildi,“ segir Halldór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×