Erlent

Nýir ráðherrar

Juppé hættur, Lagarde í fjármálin.
Juppé hættur, Lagarde í fjármálin. MYND/AFP

Christine Lagarde var í gær skipuð fjármálaráðherra Frakklands fyrst kvenna. Fyrirrennari hennar í embætti tók við sem umhverfis- og orkumálaráðherra af Alain Juppé sem féll af þingi. Michael Barnier verður landbúnaðarráðherra.

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti skipaði konu af senegölskum uppruna og talskonu múslimskra kvenna sem aðstoðarráðherra. Þykir þetta vera táknrænt merki um að Sarkozy vilji tryggja að ríkisstjórn sín endurspegli fjölbreytileika frönsku þjóðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×