Erlent

Sjö börn létust í árás alþjóðaliðs

Sjö börn, drengir á aldrinum tíu til sextán ára, létust þegar herþotur alþjóðaherliðsins í Afganistan gerðu árás á hús þar sem talið var að uppreisnarmenn væru í felum. Nokkrir uppreisnarmenn dóu í árásinni.

Héraðsstjórinn þar sem árásin varð sagði að þó að venjulega væri góð samvinna milli yfirvalda og alþjóðaliðsins hafi hann ekki vitað fyrirfram af árásinni sem hafi leitt til dauða barnanna.

Talsmaður alþjóðaliðsins sakaði al-Kaída-liða um að nýta sér saklausa borgara til að skýla sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×