Erlent

Eftirlit til N-Kóreu

Christopher Hill segir að enn sé mikið verk fyrir höndum í kjarnorkudeilunni við Norður-Kóreu.
Christopher Hill segir að enn sé mikið verk fyrir höndum í kjarnorkudeilunni við Norður-Kóreu. MYND/AP

Vonir standa til að eftirlitsmenn Alþjóðlegu kjarnorkustofnunarinnar heimsæki Norður-Kóreu fljótlega. Viðræður á milli Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hafa gengið vel að undanförnu og hafa Norður-Kóreumenn nú boðið eftirlitsmönnunum til landsins.



Að sögn Christopher Hill, fulltrúa Bandaríkjanna í kjarnorkumálum, er þó enn mikið verk fyrir höndum, sérstaklega eftir að viðræður strönduðu í nokkra mánuði vegna deilna um frysta peningasjóði Norður-Kóreu. „Þetta er skref í rétta átt. Vonandi verður þessu fylgt vel eftir með enn fleiri skrefum,“ sagði Hill.



Fimm ár eru liðin síðan Norður-Kórea rak eftirlitsmenn Alþjóðlegu kjarnorkustofnunarinnar, sem starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna, úr landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×