Erlent

Eldflaugum skotið á Ísrael

Að minnsta kosti tveimur eldflaugum var skotið frá Líbanon á Ísrael í gærdag í fyrstu eldflaugaárásinni síðan í stríði Ísraels og Hisbollah-samtakanna í Líbanon í fyrrasumar þegar tæplega 4.000 eldflaugum var skotið á Ísrael.



Hisbollah sendu síðar um daginn frá sér yfirlýsingu um að þau stæðu ekki á bak við árásina.



Háttsettur ísraelskur embættismaður sagði að Ísrael myndi ekki svara með árás en að grannt yrði fylgst með ástandinu. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×