Erlent

Sarkozy sigrar í þingkosningum

Nicolas Sarkozy frakklandsforseti
Nicolas Sarkozy frakklandsforseti

UMP-flokkur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta vann sigur í seinni umferð frönsku þingkosninganna sem fram fór í gær með 47 prósent atkvæða samkvæmt útgönguspám.



Sigurinn var þó minni en spár höfðu bent til og sýndu útgönguspár höfuðandstæðinginn, Sósíalistaflokkinn, með meira fylgi en búist hafði verið við eða 41 prósent.



Sarkozy mun samt sem áður hafa nægilega stóran þingmeirihluta til að hrinda í framkvæmd umbótaáætlun sinni sem snýr að því að aflétta hömlum á vinnumarkaði og lækka tekjuskatt meðal annars.

Kosningaþátttakan var aðeins um 60 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×