Erlent

Viðræður teknar upp að nýju

Boris Tadic
Boris Tadic

 Viðræður Serbíu við Evrópusambandið, sem eru undirbúningur að hugsanlegri framtíðaraðild landsins, voru á miðvikudag teknar upp að nýju eftir árshlé. Þeim hafði verið slegið á frest vegna skorts á að stjórnvöld í Belgrad hefðu uppi á og framseldu eftirlýsta meinta stríðsglæpamenn.



Endurupptaka viðræðna um svonefndan Stöðugleika- og aðlögunarsamning er liður í viðleitni ESB til að hjálpa Serbum að segja skilið við þjóðerniseinangrunarstefnu liðinna ára.

Fulltrúar frá Serbíu sátu jafnframt í gær í fyrsta sinn fund varnarmálaráðherra NATO-ríkja og samstarfsríkja þeirra í Samstarfi í þágu friðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×