Erlent

Barak varnarmálaráðherra

Ehud BarakTekur við af Amir Peretz sem varnarmálaráðherra.
Ehud BarakTekur við af Amir Peretz sem varnarmálaráðherra. fréttablaðið/ap

Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í gær skipun Ehud Barak sem varnarmálaráðherra. Skipunin, sem fylgir í kjölfar sigurs Barak í formannskjöri Verkamannaflokksins, markar endurkomu þessa fyrrverandi forsætisráðherra í stjórnmál, sex árum eftir niðurlægjandi kosningaósigur fyrir Ariel Sharon um forsætisráðherraembættið.

Talið er að Barak muni styrkja stöðu Olmerts forsætisráðherra, sem hefur sætt harðri gagnrýni fyrir það hvernig staðið var að stríðinu við Hisbollah-samtökin í Líbanon í fyrrasumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×