Erlent

Vill láta loka Guantanamo

Colin Powell
Colin Powell

Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að hann teldi ráðlegast að loka tafarlaust herfangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu og flytja fangana í fangelsi í Bandaríkjunum.

Guantanamo-fangelsið, þar sem um 380 meintum „óvinveittum bardagamönnum“ er nú haldið föngnum í nafni „stríðsins gegn hryðjuverkum“, hefur að sögn Powells skaðað ímynd Bandaríkjanna í heiminum.

„Ef ég fengi einhverju um það ráðið myndi ég loka Guantanamo. Ekki á morgun, heldur strax í dag,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×