Erlent

Yfirvöld segja að þeim líði vel

Danskir skipverjar, sem var rænt undan ströndum Sómalíu fyrir viku, eru enn í haldi mannræningja. Dönsk yfirvöld segja að ekki sé vitað annað en að þeim líði vel. Þau gáfu hvorki nánari skýr­ingar á líðan þeirra né hvort lausnargjalds hefði verið krafist.

Skipið Danica White var á leið frá Dubai til Kenía þegar því var rænt á alþjóðlegu hafsvæði ásamt danskri fimm manna áhöfn þess.

Bandarískt orrustuskip skaut nokkrum viðvörunarskotum yfir skipið eftir að því hafði verið rænt. Orrustuskipið hætti eftirförinni þegar Danica White sigldi inn í sómalska landhelgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×