Gátu ekki leyst öll vandamál heimsins 9. júní 2007 07:00 Þúsundir mótmælenda komu sér fyrir á vegunum til og frá Heiligendamm og margir þeirra sváfu þar í fyrrinótt. MYND/AP
Heiligendamm, AP Þriggja daga leiðtogafundi G8-ríkjanna í Heiligendamm í Þýskalandi lauk í gær. Leiðtogarnir átta lofuðu að veita 60 milljörðum dala í baráttu gegn alnæmi og öðrum sjúkdómum í Afríku, auk þess sem þeir ákváðu að þrýsta enn frekar á Írana um að hætta við kjarnorkuáform sín. Ekkert samkomulag tókst hins vegar um framtíð Kosovo-héraðs. „Auðvitað tókst okkur ekki á tveimur fundum að leysa öll vandamál heimsins,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari á blaðamannafundi í gær. „En okkur hefur miðað í áttina,“ bætti hún við. George W. Bush Bandaríkjaforseti fékk heiftarlega magakveisu og þurfti að halda sig inni á hótelherbergi í gærmorgun meðan vinnufundur var haldinn, en honum tókst þó að eiga fund í einrúmi með Nicolas Sarkozy, nýkjörnum forseta Frakklands. Talsmenn mótmælenda hrósuðu sigri eftir að hafa haldið vegum til og frá bænum Heiligendamm meira og minna lokuðum þá þrjá daga sem leiðtogafundurinn hefur staðið yfir. Þýska lögreglan sagðist á hinn bóginn einnig hafa náð sínum markmiðum, sem voru þau að halda ofbeldi í skefjum. Lögreglan tók þann pól í hæðina að leyfa mótmælendum að vera óáreittir, jafnvel þótt þeir væru á svæðum þar sem mótmæli áttu að vera bönnuð, svo framarlega sem þeir kæmu friðsamlega fram. Um leið og vart var við ofbeldi greip lögreglan hins vegar inn í og tók harkalega á fólki. Meðal helstu tíðinda af fundinum í Heiligendamm var tillaga Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta að lausn á deilunni um fyrirhugað eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna. Pútín vill alls ekki að Bandaríkjamenn setji eldflaugavarnakerfið upp í Evrópuríkjum, en á fimmtudaginn sagðist hann geta fallist á áformin ef kerfið yrði staðsett í Aserbædjan. Í gær bætti hann svo um betur og sagðist ekkert hafa á móti því að það verði sett upp í löndunum suðvestantil í Asíu. „Það væri hægt að staðsetja þær í suðrinu, í ríkjum vinveittum Bandaríkjunum eins og til dæmis Tyrklandi, eða jafnvel í Írak eða á sjávarpöllum,“ sagði Pútín á blaðamannafundi í Heiligendamm í gær.
Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Erlent Áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Innlent „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Innlent Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Sjá meira