Erlent

Átján ár liðin frá harmleiknum

Börn í Hong Kong tendra friðarljós í minningu harmleiksins.
Börn í Hong Kong tendra friðarljós í minningu harmleiksins. MYND/AFP

Þúsundir kröfðust stjórnarfarsbreytinga í Kína í gær við minningarathöfn til heiðurs fórnarlömbum ofbeldisins á Torgi hins himneska friðar 4. júní árið 1989.

Syrgjendurnir, sem sumir voru viðstaddir harmleikinn, minntust þess að átján ár voru liðin frá því að kínverski herinn bældi niður mótmæli námsmanna og verkafólks með hervaldi. Mörg hundruð fórust í átökunum.

„Hver getur ábyrgst að svona endur­taki sig ekki?" sagði einn af þeim sem lifðu átökin af. Annar benti á að minningu þessa hörmungar­atburðar hefði ekki verið haldið nægilega á lofti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×