Taylor segist ætla að verja mál sitt sjálfur 5. júní 2007 06:15 Karim Khan Lögmaður Taylors segir sakborninginn sannfærðan um að hann fái ekki réttláta málsmeðferð. MYND/AP
Charles Taylor, fyrrverandi stríðsherra í Líberíu, mætti ekki í réttarsalinn þegar réttarhöld yfir honum hófust í gærmorgun hjá alþjóðlegum stríðsglæpadómstól í Haag. Strax við upphaf réttarhaldanna tilkynnti Karim Khan, lögmaður Taylors, að hann hefði rekið sig og ætlaði að verja sig sjálfur. Síðan gekk Khan út úr réttarsalnum, þrátt fyrir að dómarinn hafi þrábeðið hann um að sitja áfram og verja Taylor, að minnsta kosti þennan fyrsta dag réttarhaldanna. Í yfirlýsingu frá Taylor, sem Khan las upp, segist Taylor sannfærður um að hann muni ekki fá sanngjarna málsmeðferð. „Þetta er engin varnarbrella,“ sagði Khan við fréttamann AP fréttastofunnar fyrir utan réttarsalinn. Khan segir Taylor hafa litið svo á að réttarhöldin myndu leiða beint til sakfellingar, „og við þær kringumstæður nýtti hann rétt sinn til að víkja mér úr starfi og verja sig sjálfur.“Dómarinn ákvað engu að síður að réttarhöldin myndu halda áfram. Stephen Rapp, aðalsaksóknari í málinu, hóf þá málflutning sinn og lýsti þeim hryllingi sem þorpsbúar í Líberí máttu þola af hendi hersveita, sem sagðar hafa verið undir stjórn Taylors. Rapp segir að hersveitirnar hafi myrt fólk af handahófi og hneppt aðra í þrældóm til að nota ýmist sem hermenn, námuverkamenn eða við landbúnaðarstörf. Rapp segir árásarmennina hafa „limlest fólk, skorið af því hendur og útlimi, stungið í augu. Börn voru þvinguð til þess að drepa foreldra sína.“ Taylor er ákærður fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni og er ákæran í ellefu liðum. Ákærurnar lúta allar að voðaverkum hersveita Taylors, sem framin voru í nágrannaríkinu Sierra Leone á árunum 1991 til 2002, þegar þar ríkti borgarastyrjöld. Líklegt þykir að Taylor muni síðar þurfa að svara til saka fyrir sams konar glæpi stríðsmanna sinna í Líberíu. Réttarhöldunum verður haldið áfram þann 25. júní næstkomandi og er reiknað með að þau standi í hálft annað ár.
Mest lesið Páll Winkel varð fyrir valinu Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Fyrir löngu búið að fara yfir þolmörk starfsfólks Ölduselsskóla“ Innlent „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Innlent Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningarmerki Innlent Kjartan og Marta út, Björn í tíunda og Friðjón í því ellefta Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Björn kemst ekki til Melaniu Innlent Fleiri fréttir Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Sjá meira