Erlent

Reykingamenn sátu úti og nutu góða veðursins

Íslendingar voru ekki þeir einu sem tóku upp reykingabann á veitingastöðum og kaffihúsum um síðustu mánaðamót, Finnar gerðu það líka. Fyrsta reyklausa helgin gekk vel í Helsinki, að sögn Finnlandssænska dagblaðsins Hufvudstadsbladet, enda sátu reykingamenn bara úti í góða veðrinu.

„Það var aðeins meiri umferð í anddyrinu þegar viðskiptavinir fóru út á götu til að reykja en ekki svo mikil að það hafi truflað aðra,“ segir Esa Paloharju á veitingastaðnum Black Door. „Einn viðskiptavinir kveikti á sígarettu inni af gömlum vana og annar sneri við og kláraði sígarettuna fyrir utan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×