Erlent

Stal íbúðarfylli af kvenfötum

Sextugur japanskur karlmaður fyllti eins herbergis vistarverur sínar af þúsundum stolinna kvenmannsklæða. Lögregla uppgötvaði þetta þegar hún fór heim til hans að handtaka hann fyrir að stela rándýrum kímónó-sloppi af heimili konu í borginni.

Maeyasu Kawamura viðurkenndi fyrir lögreglu að hafa stolið öllum fötunum, þar á meðal brúðarkjól. „Ég hef stolið kvenmannsfötum og nærfötum af handahófi undanfarinn áratug,“ sagði hann við yfirheyrslur. Fimm sendibíla þurfti til að flytja flíkurnar 8.200 úr íbúð mannsins á lögreglustöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×