Erlent

Mun ræða opinskátt við Pútín

Nicolas Sarkozy
Nicolas Sarkozy

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, segist í vikunni munu ætla að „ræða opinskátt“ við Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Tilefnið er aðvörun Pútíns um að hann muni hvergi hika við að beina kjarnorkuvopnum að Evrópu og Bandaríkjunum ef Bandaríkjamenn láta verða af því að reisa eldflaugavarnarkerfi í Tekklandi og Póllandi.

Sarkozy mun ræða við Pútín á ráðstefnu G8-ríkjanna svonefndu, sem hefst í bænum Heiligendamm í Þýskalandi á morgun. Hann hefur meðal annars lofað því að spyrja Pútín um mannréttindabrot í Tjetjeníu og morðið á blaðakonunni Önnu Politkovskayu í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×