Erlent

Notaði klám sem heilsubót

Kynlífsfíkill hefur höfðað mál gegn fyrrverandi vinnuveitenda sínum eftir að hann var rekinn fyrir að skoða klámsíður. James Pacenza, sem starfaði hjá bandaríska tölvurisanum IBM, segist hafa þjáðst af áfallastreituröskun síðan hann barðist í Víetnamstríðinu 1969 og það hafi leitt til kynlífsfíknar.

Málsóknin byggist á því að Pacenza hafi notað klámsíður til að halda áfallastreitunni niðri og að vinnuveitendur hans hafi átt að veita sér meðferð frekar en að reka hann. Pacenza segir að fíkn hans í klámsíður eigi að meðhöndla á sama hátt og gert er með fíkn starfsmanna í áfengi eða lyf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×