Erlent

Augum Stóra bróður fjölgar ört

Starfsmaður fylgist grannt með aragrúa sjónvarpsskjáa sem sýna grandalaust fólk athafna sig víðs vegar um London.
Starfsmaður fylgist grannt með aragrúa sjónvarpsskjáa sem sýna grandalaust fólk athafna sig víðs vegar um London. MYND/AP

Að meðaltali ná um 300 eftirlitsmyndavélar myndum af hverjum íbúa Bretlandseyja á dag, að því er lögregla þar í landi fullyrðir. Hvergi í hinum vestræna heimi er eftirlit með borgurum jafnmikið. Yfir fjórar milljónir eftirlitsmyndavéla eru í landinu á vegum hins opinbera.

Þeir leynilegu atburðir sem nást á myndavélarnar eru sjaldnast af glæpsamlegum toga, heldur mun oftar atburðir úr einkalífi fólks, á borð við kossaflens í laumi. Þó benda kannanir þarlendis til þess að yfir áttatíu prósent Breta telji strangt eftirlit viðunandi fórnarkostnað í skiptum fyrir öryggið sem því fylgir, jafnvel þótt í því felist símhleranir, ofurnæmir hljóðnemar á víðavangi sem nema hvísl manna í millum og að hnýst sé í póst almennings.

Tvö ár eru bráðum frá hryðjuverkaárásunum á London í júlí 2005, þar sem eftirlitsmyndavélar hjálpuðu mjög við að upplýsa málið.

En það er fleira en meint hryðjuverkastarfsemi sem fylgst er með í myndavélunum. Í Gloucester í Englandi eru öryggismyndavélar útbúnar hljóðnemum og hátölurum. Fólk sem staðið er að jafnvel vægustu afbrotum, svo sem að fleygja rusli á götuna, er samstundis látið vita að verið sé að fylgjast með því, og því gefið tækifæri á að breyta rétt. Öll samskiptin eiga sér stað í gegnum myndavélina.

Þá eiga bresk yfirvöld stærsta lífsýnabanka veraldar, með upplýsingum um ofbeldismenn og unga afbrotamenn. Í bankanum eru upplýsingar um á fjórðu milljón manns, en um þriðjungur þeirra hefur aldrei verið fundinn sekur um glæp. Hagsmunasamtök óttast að þessar upplýsingar kunni einn daginn að verða notaðar, meðal annars af tryggingafélögum.

Mörgum hrýs hugur við þessari þróun.

Hagsmuna­félög segja ríkisstjórnina gera Bretland æ líkara samfélagi sem byggist á persónunjósnum og minnka réttindi borgaranna hröðum skrefum. David Morgan yfirlögregluþjónn svarar efasemdum, líkt og bresk yfirvöld gera jafnan, með sígildum rökum: „Það er óþarfi að hafa áhyggjur af svo nánu eftirliti – nema auðvitað ef þú hefur óhreint mjöl í pokahorninu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×