Erlent

Of drukknir áhorfendur til ama

Christian Heide-Jørgensen, blaðamaður hjá danska dagblaðinu Politiken sem skrifað hefur um árásina á dómarann, segir Dani enn vera að jafna sig eftir uppákomuna á Parken á laugardag. Hann telur áfengisneysluna sem slíka ekki vera aðalatriðið heldur sé slakt eftirlit á vellinum áhyggjuefni.

„Það er auðvelt að kenna áfenginu um en ég held að eftirlitið á vellinum hafi ekki verið nægilega gott. Ef fólk er of drukkið á það ekki að komast inn á leikvanginn. Það er alvarlegt mál ef áhorfendur geta hlaupið alla leið inn á völlinn næstum fyrirhafnarlaust og gert árás á dómara leiksins. Ég held því að það sé nauðsynlegt að herða eftirlitið með fólki sem mætir ofurölvað á leiki.“

Danski maðurinn sem hljóp inn á völlinn býr í Svíþjóð en danskir fjölmiðlar hafa gagnrýnt hann harkalega fyrir framferðið á laugardaginn. Heide-Jørgensen segir ritstjórn Politiken ekki hafa viljað nafngreina manninn að ótta við ofsakennd viðbrögð enda líti Danir atvikið alvarlegum augum. „Okkur fannst það of langt gengið að nafngreina manninn og aðrir fjölmiðlar hafa haldið þeirri stefnu hingað til. Ég held að það hefði getað ógnað öryggi hans.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×