Erlent

Lögreglumaður sást lemja konu

Breska lögreglan er nú í töluverðum vandræðum en krafist hefur verið sjálfstæðrar rannsóknar á myndum úr öryggismyndavél sem sýna lögreglumann slá ítrekað til konu sem hann er að handtaka. Konan, sem er tvítug var handtekin í Sheffield síðasta sumar fyrir að skemma bíl, sakir sem hún hefur síðan játað.

Lögmaður hennar hefur krafist rannsóknar nefndar sem er óháð lögreglunni. Löreglan sjálf hefur sagst ætla að rannsaka kvartanir konunnar en hafa sagst ánægðir með viðbrögð lögreglumannsins, að hann hafi bara reynt að yfirbuga konuna.

Það var breska blaðið Guardian sem komst yfir myndskeiðið sem var fyrst sýnt almenningi í sjónvarpsfréttum á BBC í gærkvöldi. Í myndskeiðinu sést þar sem konan og lögreglumaðurinn detta niður stiga utan við næturklúbb í Sheffield, þá koma fleiri lögreglumenn að sem járna konuna á meðan hinn kýlir konuna fimm sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×