Erlent

Hvetur Frakka til að kjósa ekki

Jean-Marie le Pen segist ætla að ná fram „hefndum“ í þingkosningunum.
Jean-Marie le Pen segist ætla að ná fram „hefndum“ í þingkosningunum. MYND/AP

Jean-Marie le Pen, hinn aldni leiðtogi franskra þjóðernissinna, hvetur fólk til að sitja heima í seinni umferð forsetakosninganna um helgina. Hann tapaði í fyrri umferð kosninganna fyrir sósíalistanum Ségolène Royal og hægrimanninum Nicolas Sarkozy.

Í staðinn stefnir le Pen nú á framboð með flokki sínum til þingkosninganna í júní og segist ætla að ná þar fram „hefndum“. Að minnsta kosti fjögur þúsund manns sóttu 1.-maí-útifund hans í París á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×