Írakar óska skuldaeftirgjafar 4. maí 2007 03:30 Nouri al-Maliki forsætisráðherra Íraks, ásamt túlki á fundi með Condoleezzu Rice á ráðstefnunni í Sharm-el-Sheik í Egyptalandi í gær. MYND/AP
Á tveggja daga alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin er í Egyptalandi og ætlað er að safna hugmyndum, fé og öðrum stuðningi við stöðugleika og uppbyggingu í Írak, átti Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viðræður við starfsbróður sinn frá Sýrlandi og var það fyrsti fundur háttsettra fulltrúa landanna tveggja um árabil. Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hvatti í opnunar-ávarpi ráðstefnunnar til þess að ríkisstjórnir landa heims íhugi alvarlega að gefa Írak eftir erlendar skuldir sínar. Þær nema á að giska því sem svarar 3.200 milljörðum króna. Nú þegar hefur svonefndur Parísarklúbbur lánardrottna gefið Írökum eftir skuldir að upphæð um 100 milljarða bandaríkjadala, andvirði um 6.400 milljarða króna. Eitt af markmiðum ráðstefnunnar er að koma á betri tengslum milli Íraksstjórnar, sem sjía-múslimar fara fyrir, og stjórnvalda í arabalöndunum, þar sem súnní-múslimar ráða öllu. Auk skuldaeftirgjafar vill Íraksstjórn að stjórnvöld í arabalöndunum beiti sér til að stemma stigu við straumi erlendra bardagamanna til Íraks, en þeir eru fjölmennir í hópi uppreisnarmanna þar. Um þetta síðasta atriði snerist fundur Rice með sýrlenska utanríkisráðherranum Walid al-Moallem.
Mest lesið Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Innlent Lífið gjörbreytt Innlent Elsti Íslendingurinn er látinn Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Innlent Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Innlent Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Innlent Fleiri fréttir Vöruðu við flóðbylgjum eftir stærðarinnar jarðskjálfta Kallar Greene heimskan svikara Segir að taka þurfi mikilvægar ákvarðanir Ætla að gera út af við hernaðargetu Kambódíu Með byssu í stærstu verslunarmiðstöð Oslóar Trump hundfúll að fá ekki greiða gegn greiða Átök blossa aftur upp á landamærum Taílands og Kambódíu Japanir saka Kínverja um óvarlega framgöngu í háloftunum Segir Rússa viljuga en Selenskí ekki Fundu spjótsodda alsetta gulli mörghundruð árum eldri en talið var mögulegt Á fjórða hundrað gripa orðið fyrir vatnstjóni á Louvre Meiri ógn af smábátum í Karíbahafinu en Rússlandi „Samrýmist að miklu leyti okkar sýn“ Árleg tannlæknaheimsókn á brúsa danska ríkisins Handtekinn á Heathrow eftir árás með piparúða Hótar að ganga úr Evrópusamningi til að svipta útlendinga ríkisfangi Hermenn reyna að ræna völdum í Benín Tuttugu og fimm fórust þegar skemmtistaður brann til kaldra kola Sambandið við Rússland og siðrof í Evrópu í forgangi Á fjórða tug barna drepin í drónaárás á leikskóla Hvelfingin um Tsjernobyl-verið stöðvar ekki kjarnorkugeislun Telja Evrópu traðka niður andóf gegn Úkraínustríðinu Ferðabannið útvíkkað frá tólf ríkjum í yfir þrjátíu Óþekktir drónar stefndu á vél Selenskí við Írland Vellinum í Edinborg lokað um stund og seinkanir mögulegar Norðmenn kaupa langdræg vopn og kafbáta fyrir milljarða Biðla til Belga en tvær tillögur á borðinu Endurheimtu verðmætt hálsmenið úr þörmum þjófsins Óheimilt að skjóta niður ólöglega dróna nema af þeim stafi hætta Krefja Farage um heiðarleika og afsökunarbeiðni Sjá meira