Erlent

Eitt síðasta tækifæri Royal

Neistarnir flugu þegar keppinautarnir um franska forsetaembættið, sósíalistinn Segolene Royal og hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy, mættust í sjónvarpskappræðum í gærkvöld. Þær voru hápunktur kosningabaráttunnar fyrir úrslitaumferð kosninganna á sunnudaginn.

Kappræðurnar voru svo að segja síðasta tækifæri Royal til að vinna upp fylgisforskotið sem flestar skoðanakannanir hafa sýnt Sarkozy njóta. Hún gagnrýndi þar meðal annars feril Sarkozy sem ráðherra í ríkisstjórn Jacques Chirac. Þau tókust einnig á um 35 stunda vinnuvikuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×