Erlent

Fjórir Pakistanar hálshöggnir

Yfirvöld í Sádi-Arabíu létu í gær hálshöggva fjóra Pakistana, sem dæmdir höfðu verið fyrir að berja mann til dauða þar sem hann svaf í rekkju sinni, nauðga og misþyrma eiginkonu hans og ræna fé og skartgripum hjónanna. Frá þessu greindi sádi-arabíska innanríkisráðuneytið.

Í Sádi-Arabíu á fólk líflát yfir höfði sér sem dæmt er fyrir morð, eiturlyfjasmygl, nauðgun eða vopnuð rán. Aftökurnar fara fram fyrir opnum tjöldum. Hinir dæmdu eru hálshöggnir með sverði. 51 maður hefur verið hálshöggvinn í landinu það sem af er þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×