Erlent

Fengu þunga fangelsisdóma

Ópið eftir Munchþ Þetta fræga málverk var í vörslu þjófa í tvö árþ
Ópið eftir Munchþ Þetta fræga málverk var í vörslu þjófa í tvö árþ

Áfrýjunardómstóll í Noregi dæmdi þrjá menn í allt að níu og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa aðstoðað vopnaða þjófa við að stela tveimur málverkum eftir Edvard Munch árið 2004.

Málverkin Ópið og Madonna, sem talin eru ómetanleg, fundust töluvert skemmd í ágúst síðastliðnum, rúmlega tveimur árum eftir að þeim var stolið um hábjartan dag frá Munch-safninu í Osló.

Mennirnir þrír voru sýknaðir í héraðsdómi í Osló á síðasta ári, en áfrýjunardómstóllinn hefur nú dæmt einn mannanna í níu og hálfs árs fangelsi, annan í níu ára og þann þriðja í fimm og hálfs árs fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×