Erlent

Stefnir í óefni að mati lækna

Aukakíló Yfir helmingur Evrópubúa telst vera of þungur.
Aukakíló Yfir helmingur Evrópubúa telst vera of þungur. MYND/Getty

Evrópuþjóðir kunna að standa frammi fyrir miklum heilsufarslegum og félagslegum vanda eftir því sem offita eykst æ meira meðal bæði fullorðinna og barna. Þetta sögðu læknar og aðrir sérfræðingar í offituvandanum sem voru saman komnir á sunnudag á 15. Evrópuráðstefnunni sem helguð er þessu viðfangsefni og fór fram í Búdapest í Ungverjalandi.

„Það ætti að meðhöndla offitusjúklinga innan heilbrigðiskerfisins með alveg sama hætti og gert er með fólk sem þjáist af hverjum öðrum flóknum sjúkdómi,“ sagði Vojtech Hainer, forseti evrópskra samtaka þeirra sem stunda rannsóknir á offituvandanum (EASO). „Í mörgum Evrópulöndum er yfir helmingur íbúanna of þungur eða offitusjúklingar.“

Hainer sagði aukakíló einn helsta áhættuþáttinn sem yki á heilsufarsvandamál og þau styttu meðallífslíkur um tvö ár.

Sérfræðingar hafa sérstakar áhyggjur af vaxandi offitu barna. „Yfir 80 prósent of þungra barna verða það áfram á fullorðinsárum,“ sagði dr. Martin Fried við Karls-háskólann í Prag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×