Erlent

Fimm hundruð dauðsföll á ári

Rauði krossinn í Bagdad.
Bifreiðar eru hættulegar, líka þegar hjálparstarfsmenn sitja við stýrið.
Rauði krossinn í Bagdad. Bifreiðar eru hættulegar, líka þegar hjálparstarfsmenn sitja við stýrið. AFP

Starfsmenn alþjóðlegra hjálparstofnana valda hátt í 500 dauðsföllum í umferðinni á ári hverju. Þetta upplýsir Rob McConnell, sem starfar við að samhæfa umferðaröryggismál fjörutíu alþjóðlegra hjálparstofnana í tilefni þess að nú stendur yfir alþjóðleg umferðaröryggisvika Sameinuðu þjóðanna.

Hjálparstofnanirnar fjörutíu hafa yfir um 80 þúsund vélknúnum farartækjum að ráða, allt frá vélhjólum til þungaflutningabifreiða.

„Meðan við sinnum því verkefni okkar að bjarga mannslífum, þá drepum við milli 400 og 500 manns í umferðinni á hverju ári,“ segir McConnell, og tekur fram að hjálparstofnanirnar standi sig fimm sinnum verr í umferðinni en alþjóðleg olíufyrirtæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×