Erlent

Þrír látnir eftir lestarslys á Sardiníu

Þrír létust þegar tvær lestir rákust saman á eyjunni Sardiníu við Ítalíu í morgun. Tveir hinna látnu voru Ítalir, annar þeirra stjórnandi annarrar lestarinnar. Hinn lestarstjórinn liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi. Þá lést bresk kona í slysinu og unnusti hennar slasaðist. Ekki liggur fyrir hvers vegna lestirnar rákust saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×