Erlent

Refsað fyrir umhverfisglæpi

Frumvarp kynnt Stavros Dimas, sem fer með umhverfismál í framkvæmdastjórn ESB, kynnti frumvarpið í gær.
Frumvarp kynnt Stavros Dimas, sem fer með umhverfismál í framkvæmdastjórn ESB, kynnti frumvarpið í gær. MYND/AP

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði í gær fram frumvarp að nýrri Evrópulöggjöf, sem hefur að markmiði að gera glæpi gegn umhverfinu refsiverða. Er gert ráð fyrir að fyrir alvarleg brot verði hægt að dæma menn í allt að fimm ára fangelsi eða allt að 750.000 evra sekt, andvirði hátt í 67 milljóna króna.

Samkvæmt frumvarpinu verður dómstólum ennfremur heimilt að fyrirskipa stöðvun á rekstri fyrirtækis og að gera umhverfisbrotamönnum að hreinsa upp eftir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×