Erlent

Líkamsleifar Alexei og Mariu Romanov fundnar

Rússneskir vísindamenn segja að þeir hafi borið kennsl á líkamsleifar þeirra Alexei og Mariu Romanov, tveggja barna Nikulás II Rússlandskeisara. Þegar líkamsleifar Romanov fjöldskyldunnar fundust árið 1991 voru Alexei erfingi krúnunnar og Maria eldri systir hans ekki meðal hinna gröfnu. Líkamsleifar þeirra fundust í júlí s.l. við Yekateringburg.

Keisarinn, kona hans og fimm börn voru tekin af lífi af Bolshevikkum þann 17. júlí 1918. Líkamsleifar fjölskyldunnar fundust ekki fyrr en 1991 við Yekateringburg skammt frá þeim stað sem Alexei og Maria fundust í sumar.

Samkvæmt frétt á BBC vefsíðunni hefur það lengi verið ein af óleystum gátum rússnesku byltingarinnar hvar Alexei og Maria voru grafin. Vísindamennirnir segja, eftir mikla DNA-rannsókn, að nær öruggt megi telja að þau tvö séu nú fundin. Hinn hlutinn af fjölskyldunni var grafinn með mikilli viðhöfn í Pétursborg árið 1998.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×