Erlent

Hvít-Rússar skrúfa fyrir olíu til Evrópu

Deila Rússlands og Hvíta-Rússlands um olíuverð er farin að bitna á nokkrum Evrópuríkjum þar sem Hvít-Rússar hafa skrúfað fyrir olíu sem leidd er í pípum gegnum landið frá Rússlandi til Evrópu.

Rússneska olíuleiðslufyrirtækið Transneft sakar Hvít-Rússa um að hafa hirt sjálfir olíu úr leiðslunum, sem eingöngu eru ætlaðar til þess að flytja olíu í gegnum Hvíta-Rússland og áfram til Evrópuríkja.

Ekki er þó talið að stutt stopp valdi miklum skaða í Póllandi eða Þýskalandi þar sem olíubirgðir eru þar nægar. Hvít-Rússar sögðu líklegt að fljótlega yrði opnað fyrir olíustreymið á ný.

„Þetta sýnir okkur enn og aftur að deilur milli fyrrverandi Sovétríkja, milli þeirra landa sem útvega birgðir og hinna sem flytja þær, gera það að verkum að þessir flutningar eru óáreiðanlegir frá okkar sjónarmiði séð,“ sagði Andrei Popov, talsmaður pólska efnahagsráðuneytisins. Næstum því 96 prósent af allri olíu sem Pólverjar nota koma frá Rússlandi um þessa olíuleiðslu.

Þýsk stjórnvöld staðfestu að olíuleiðslunni hefði verið lokað, en Þjóðverjar kaupa frá Rússum rúmlega þriðjunginn af allri þeirri olíu sem flutt er inn til Þýskalands.

Pólverjar segjast eiga um það bil 80 daga birgðir af olíu og Þjóðverjar eiga 130 daga birgðir, samkvæmt upplýsingum frá Evrópusambandinu. Hvít-Rússar virðast hafa skrúfað fyrir olíuna nú um helgina, aðeins örfáum dögum eftir að Hvít-Rússar samþykktu eftir mikið þref að greiða Rússum tvöfalt hærra verð fyrir gasið, sem Hvít-Rússar eru háðir til upphitunar bæði fyrir heimili og fyrirtæki.

Rússar og Hvít-Rússar deila hins vegar áfram, því nú vilja Rússar koma í veg fyrir að Hvít-Rússar selji öðrum löndum olíu, sem þeir keyptu ódýrt af Rússum meðan verðið var lægra.

Olíuleiðslan, sem Hvít-Rússar skrúfuðu fyrir, er 4.000 kílómetra löng og með henni er flutt olía frá vestanverðri Síberíu, Úralfjöllum og Kaspíahafi til landa í Austur- og Mið-Evrópu. Venjulega er flutningsgeta leiðslunnar fullnýtt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×