Erlent

300 heimili í hættu vegna skógarelda í Kaliforníu

Slökkviliðsmenn berjast við eldinn í návígi.
Slökkviliðsmenn berjast við eldinn í návígi. MYND/AP

100 heimili voru rýmd í gær og 200 til viðbótar eru í hættu í Kaliforníu þar sem skógareldar brenna stjórnlaust í hæðunum. Eldurinn geisar á yfir 50 hektara svæði í kringum Elsinore-vatn, sem er um 120 kílómetra austur af Los Angeles. Þykkur runna- og trjágróður er í hæðunum í nágrenni vatnsins.

180 slökkviliðsmenn berjast þrotlaust við eldinn en ekki er vitað hver upptök eldsins eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×