Erlent

Íranar velja veraldlega og geistlega fulltrúa

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, greiddi atkvæði í Teheran í morgun.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, greiddi atkvæði í Teheran í morgun. MYND/AP

Íranar ganga í dag að kjörborðinu og velja sér fulltrúa í bæjarstjórnir og í eina áhrifamestu trúarstofnun landsins sem þekkt er undir nafninu Sérfræðingasamkoman. Hlutverk hennar er að velja og sjá um æðsta leiðtoga landsins, en því embætti gegnir æjatolla Ali Khamenei nú. Kosningarnar eru taldar fyrsti mælikvarðinn á stuðning Írana við forsetann Mahmoud Ahmadinejad frá því að hann komst til valda og hafa bæði umbótasinnar og harðlínumenn hvatt fólk til að neyta atkvæðisréttar síns í kosningunum, en umbótasinnar hafa undanfarin ár farið halloka fyrir íhalds- og harðlínumönnum í kosningum í landinu. Um 46 milljónir Írana eru á kjörskrá í kosningunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×