Erlent

Byssumenn halda gíslum í olíubirgðastöð í Nígeríu

Byssumenn réðust í morgun inn á olíubirgðastöð á vegum Shell í suðurhluta Nígeríu í morgun og halda nokkrum hermönnum og verkamönnum í gíslingu. Frá þessu greindu yfirvöld í landinu.

Þetta er í annað sinn á rúmri viku sem ráðist er á olíustöð á svæðinu en í síðustu viku reyndu andófsmenn að eyðileggja stóra olíubirgðastöð og rændu fjórum verkamönnum. Reuters-fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum sínum innan nígeríska hersins að árásin tengist meintum skuldum Shell við yfirvöld á svæðinu. Deilur milli olíufélaga og yfirvalda í sveitum og bæjum eru algengar í þessu áttunda mesta olíuútflutningsríki heims en þær hafa hingað til verið leystar á fáum dögum með aðkomu ríkisstjórnar Nígeríu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×