Erlent

Hamas-liðar taka sér stöðu á götum úti í Gasaborg

Vopnaðir menn á vegum Hamas-samtakanna hafa tekið sér stöðu við helstu götur í Gasaborg, daginn eftir að skotið var á bílalest Isamails Haniyeh, leiðtoga samtakanna og forsætisráðherra.

Hamas-liðar saka sveitir hliðhollar Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbas um að standa á bak við banatilræði við ráðherrann í gærkvöld en þá var skotið á hann við landamærastöð eftir að hann sneri heim úr fjárölfunarferð fyrir Palestínu frá Egyptalandi. Byssumenn Hamas munu samkvæmt sjónarvottum vera með hríðskotariffla og sprengjuvörpur á götum úti og því ljóst að spennan er mikil á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna. Valdabarátta Hamas og Fatah hefur farið vaxandi undanfarnar vikur og viðræður um myndun þjóðsstjórnar fylkinganna eru í algjöru uppnámi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×