Lögreglan yfirheyrir forsætisráðherrann 15. desember 2006 06:30 Tony Blair sætti í gær yfirheyrslum bresku lögreglunnar vegna meintrar mútuþægni innan ríkisstjórninnar. Hann er þó ekki grunaður um að þiggja mútur, heldur mætti eingöngu sem vitni. MYND/AP
Forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, var í gær yfirheyrður af bresku lögreglunni vegna rannsóknar á hneykslismáli sem varðar meinta sölu ríkisstjórnarinnar á aðalstitlum. Talsmaður Blairs tók fram að forsætisráðherrann hefði eingöngu verið kallaður fyrir sem vitni og að hann hefði ekki réttarstöðu sakbornings í þessu máli. Hins vegar er afar sjaldgæft að breska lögreglan yfirheyri forsætisráðherra í rannsóknum sínum. Sá er siðurinn að forsætisráðherra Bretlands berast ábendingar um fólk sem heiðra ber fyrir ýmiss konar verk. Hann færir svo drottningu nöfn þessa fólks, og getur heiðurinn sem þeim hlotnast verið allt frá orðum upp í riddara-tign og aðalstitla. Ábendingarnar koma úr ýmsum áttum, en ekki er óalgengt að stjórnmálaflokkar útnefni menn. Rannsókn lögreglunnar felst í því hvort einhverjir flokkar hafi lofað mönnum heiðri drottningar og þegið í staðinn lán eða annan fjárhagslegan stuðning. Lög um fjármögnun stjórnmálaflokka Bretlands leyfa nafnleynd þegar stjórnmálaflokkum eru boðin lán. Hið sama gildir þó ekki þegar um bein fjárframlög er að ræða. Lögreglurannsókn hefur leitt í ljós að Verkamannaflokkurinn, sem Blair leiðir, hafi þegið slík lán frá alls tólf aðilum og mun upphæðin nema nær fjórtán milljónum punda, sem samsvara tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna. Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndir demókratar hafa einnig viðurkennt að hafa þegið slík nafnlaus lán. Blair hefur áður viðurkennt að sumir þeirra stuðningsmanna sem buðu lánin hafi síðar verið útnefndir til setu í lávarðadeild breska þingsins. Lögreglan rannsakar því hvort háttsettir aðilar innan flokkanna þriggja hafi lofað lánardrottnunum heiðri í stað fjárins. Blair var yfirheyrður í rúma hálfa aðra klukkustund, en forsætisráðherrann, sem er lærður hæstaréttarlögmaður, hafði ekki lögfræðing viðstaddan. „Forsætisráðherrann útskýrði af hverju hann útnefndi hvern og einn,“ sagði talsmaður Blairs sem ræddi við fréttamenn undir nafnleynd. Þegar hafa nokkrir háttsettir meðlimir Verkamannaflokksins verið yfirheyrðir, þeirra á meðal vísindaráðherrann Sainsbury lávarður. Jafnframt var Michael Howard, fyrrverandi leiðtogi Íhaldsflokksins, yfirheyrður í síðasta mánuði.
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Erlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Sjá meira