Erlent

Landamærastöð tekin með valdi

Palestínumenn við landamærastöðina í Rafah í gær.
Palestínumenn við landamærastöðina í Rafah í gær. MYND/AP

Vopnaðir liðsmenn Hamas-samtakanna gerðu áhlaup á landamærastöðina í Rafah á Gaza-ströndinni með það fyrir augum að opna hana fyrir Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínustjórnar og eins af leiðtogum Hamas.

Honum hafði verið meinað að fara yfir landamærin frá Egyptalandi, að kröfu Ísraelsstjórnar, þar sem hann var með tugi milljóna Bandaríkjadala í reiðufé með í för. Fénu hafði hann safnað á ferð um vinveitt lönd fyrir fjársvelta heimastjórnina.

Erlendir gæsluliðar tóku síðan landamærastöðina aftur yfir og héldu henni lokaðri fyrir Haniyeh. Eftir að myrkur skall á gerðu Hamas-liðarnir aftur árás á hana.

Átökin eru framhald vaxandi erja milli fylkinga Palestínumanna í Hamas og Fatah.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×