Erlent

Lofaði megrunarpillur og fékk fé

Yfirmaður næringarfræði innan danska Hreyfingar- og fæðuráðsins hefur gerst uppvís að því að hæla megrunarpillum frá tveimur fyrirtækjum sem greiddu honum laun á meðan. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken í gær.

Aðspurður sagðist Bjørn Richelsen ekki sjá neitt athugavert við að hafa verið á launalista framleiðandanna. Hann hafi fengið greitt frá fyrirtækjunum vegna rannsókna á fitu og sykursýki, en í starfi sínu hjá ráðinu hafi hann hins vegar hafi hann hvatt til betri lifnaðar og fyrirbyggjandi aðgerða.

Fráfarandi fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur, Lars Barfoed, útnefndi Richelsen í stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×