Erlent

Segist vita hver eitraði fyrir sér

Viktor Jústsjenko
Viktor Jústsjenko

Viktor Jústsjenko, forseti Úkraínu, sagði í gær að saksóknarar hefðu nú undir höndum næg sönnunargögn til að handtaka þá sem hefðu átt þátt í að eitra fyrir sér fyrir rúmum tveimur árum.

„Það liggja fyrir nægar upplýsingar til að handjárna þessa menn,“ tjáði Jústsjenkó fréttamönnum. Hann sagði þó ekki hverjir hann teldi að hefðu staðið á bak við að byrla sér díoxíneitrið, en samsærið kallaði hann morðtilraun.

Jústsjenkó veiktist heiftarlega í forsetakosningabaráttunni haustið 2004 og andlit hans hefur verið afmyndað síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×