Erlent

Indland og Pakistan hefja friðarviðræður á ný

Indverjar og Pakistanar hafa hafið friðarviðræður á ný, í fyrsta skipti eftir sprengjuárásir á lestakerfi Mumbay í júlí. Utanríkisráðherrar landanna hittast í Delhí, höfuðborg Indlands. Mjög stirt var milli landanna eftir sprengingarnar í sumar enda skellti Indland skuldinni á Pakistan, en þar á bæ neituðu menn öllum ásökunum.

Þeir munu ræða saman í tvo daga í þetta skiptið. Ekki er búist við að mikið miði í samningsátt á þessum tveimur dögum enda er helsti sigurinn núna að sýna viljann til að halda viðræðunum áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×